„Þjóðin getur vel talað saman,“ sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra að afloknum umræðufundi á Eskifirði í kvöld, þar sem sjötíu til áttatíu manns mættu. „Þjóðin skilur að það þarf stundum að taka stórar ákvarðanir, og hún treystir sér til þess; ég held að það liggi að minnsta kosti fyrir eftir þessa tvo fundi,“ sagði Kristrún í samtali við fréttamann RÚV eftir fundinn.Fundaröð forsætisráðherra hófst í Reykjanesbæ í gærkvöld; á morgun verður Kristrún með samskonar fund á Djúpavogi.Nokkuð fjörugar umræður spunnust á fundinum á Eskifirði í kvöld um málefni á borð við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, gjaldeyrismál, landbúnað, sjávarútveg og hvort ríkisstjórnin sæi fram á að ljúka mögulegum aðildarviðræðum, bjóði niðurstaðan í þjóðaratkvæðagreiðslunni upp á það. Kristrún sagði vi