Starfsfólk RÚV var á ferð og flugi í allan dag að flytja fregnir af sólmyrkvanum og almyrkvanum sem gekk yfir vestanvert landið á sjötta tímanum.Í sjónvarpsfréttum var farið yfir ýmislegt áhugavert frá deginum. Á Bolafjalli var rætt við konu sem kom með fjölskylduna til Íslands til að sjá sólmyrkva í fjórða sinn. Kíkt var við á Látrabjargi þar sem skýin létu undan ágangi veðurfræðinga og færðu sig frá rétt á meðan á myrkvanum stóð. Á Vesturlandi var staðan tekin á umferðinni og í Hafnarfirði var tal tekið af skipuleggjendum Echolalia, sólmyrkvahátíðar Bjarkar Guðmundsdóttur og Smekkleysu.Einnig var sýnt úrval af myndefni frá almyrkvanum, til dæmis frá Látrabjargi þar sem veðurskilyrði voru einna best til að berja náttúrufyrirbærið augum.