Veðurspáin flækti málin fyrir almannavörnum

Runólfur Þórhallsson, sviðstjóri almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, segir að það hafi gengið mjög vel í dag enda hafi viðbúnaður vegna sólmyrkvans verið vel undirbúinn. Fólk kom saman víða á vestanverðu landinu í tilefni almyrkvans sem gekk yfir landið á sjötta tímanum.„Við höfum verið í raun og veru í hálft ár í undirbúningi fyrir þetta. Það virðist vera að skila sér – góður undirbúningur,“ segir Runólfur.Hann ræddi viðbúnað vegna sólmyrkvans í Speglinum í kvöld, um tuttugu mínútum eftir að almyrkvinn gekk yfir.„Nú er það heimferðin og við erum með augun á því núna. En dagurinn hefur í raun og veru bara gengið eftir áætlun.“Umferðin vestur á land var þung í dag. Þó mynduðust ekki neinar miklar tafir eða teppur.„Það voru mörg sem fóru af stað í gær, góðu heilli, þannig þetta hefur dr
Veðurspáin flækti málin fyrir almannavörnum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd