„Það hefur gengið mjög vel enn sem komið er, slysalaust. Engar tilkynningar um óhöpp hafa borist til okkar,“ segir Hlynur Snorrason, yfirlögregluþjónn á Vestfjörðum, í samtali við mbl.is, en mikill fjöldi ferðamanna hefur lagt leið sína til Vestfjarða til að fylgjast með almyrkva á sólu.