Fjölmiðlafyrirtækið The Intercept og samtökin Freedom of the Press Foundation hafa kært Donald Trump Bandaríkjaforseta fyrir fyrirætlanir um að rukka fyrir forgang að færslu á samfélagsmiðlunum hans, Truth Social.Trump hefur notað miðilinn mikið til að koma skilaboðum á framfæri og færslurnar hafa oft haft áhrif á markaði í Bandaríkjunum og víðar. Skiptir engu þó að skilaboðin fjalli um til dæmis stöðuna í Íran eða nýja tolla. Í júlí voru áætlanir kynntar um að borgandi áskrifendur af miðlinum fengju aðgang strax að skilaboðum Trumps. Þar getur munað nokkrum sekúndum sem geta skipt máli þegar markaðir eru annars vegar. Áætlunin hefur verið kölluð Truth API.Í greinargerð með kærunni segir að aðgangurinn geti kostað allt að 100 þúsund bandaríkjadali á mánuði, eða rúmar 12,3 milljónir króna.