Tófan gæti grætt á almyrkvanum

Almyrkvinn sem verður á sólu síðdegis varir lengst á landi við Látrabjarg. Látrabjarg er jafnframt eitt stærsta fuglabjarg í álfunni, en hvað gera fuglarnir í sólmyrkva?„Ég geri ráð fyrir því að það gerist bara það sama og gerðist í nótt, það bara þagnaði allt þegar kom myrkur,“ segir Gísli Már Gíslason, prófessor emeritus í líffræði. Hann segist hafa lesið að fuglar og dýr þagni í sólmyrkvum þó að hann hafi aldrei upplifað það sjálfur.„Krían er að æfa ungana núna fyrir langflugið til Vaðlahafs á Suðurskautinu. Ég geri bara ráð fyrir því að þær fái sér hvíld. Það kemur myrkur og þær misskilji ástandið og haldi að það sé komin nótt.”Á Snæfellsnesi og á Reykjanesskaga gerir Gísli ráð fyrir að fuglarnir bregðist eins við þótt það sé ekki eins mikið af svartfugli þar eins og í kringum Látrabja
Tófan gæti grætt á almyrkvanum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd