Sex börn voru í dag flutt á sjúkrahús í Steinkjer í Noregi þegar brennisteinssýra komst í snertingu við klór svo úr varð klórgas. Þetta gerðist í innanhússsundlauginni Dampsaga.Í frétt NRK segir að efnunum hafi verið blandað saman fyrir mistök.Alvarleiki slyssins liggur ekki fyrir. Í það minnsta 68 voru í lauginni.Stig Lunde, varðstjóri hjá neyðarþjónustunni í Mið-Noregi, segir að verið sé að loftræsta bygginguna. Reykkafarar fóru inn til þess að sjá til þess að allir kæmust út.Christopher James White aðgerðarstjóri segir að fullorðnum hafi ekki stafað nein hætta af klórgasinu en það geti valdið öndunarfæraerfiðleikum hjá börnum. Nokkrum börnum var því komið undir læknishendur og þau fengu súrefnismeðferð.Gunnar Thorsen, bæjarstjóri í Steinkjer, segir þetta alvarlegt og hörmulegt atvik. Se