Fólk spennt víða um álfuna þó ekki sé alls staðar almyrkvi

Ferðamenn fylla göturnar í annars litlum og rólegum þorpum á Spáni vegna almyrkvans sem sést þar í dag. Myrkvinn færist þar yfir rúmum hálftíma seinna en hér á landi. Þá verður klukkan tæplega hálf níu að kvöldi og sólin lágt á lofti.Myrkvinn færist norður eftir Íberíuskaganum frá Atlantshafi suður til Miðjarðarhafs. Mikil umferð hefur verið á Spáni í dag af erlendum bílum á leið suður á bóginn til að vera á sem bestum stað til að berja dýrðina augum - þó ekki berum augum meðan á deildarmyrkvanum stendur því þá þarf að nota sólmyrkvagleraugun. Þetta er fyrsti almyrkvinn á Spáni í tæp 100 ár.Brian May, sem er þekktastur sem gítarleikari hljómsveitarinnar Queen en er jafnframt stjörnufræðingur, er meðal þeirra sem fór til Spánar til að sjá fyrirbærið. „Þetta er eins konar guðsgjöf inni í til
Fólk spennt víða um álfuna þó ekki sé alls staðar almyrkvi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd