Gísli Már Árnason ljósmyndari segir margar leiðir færar til að mynda sólmyrkvann. Þrátt fyrir að fólk taki myndir í rigningu komi það ekki í veg fyrir að það sjáist hvernig skuggi tunglsins þeysist yfir.„Þá mæli ég hiklaust með svona fisheye-linsum eins og ég er með hérna eða einhverjum víðlinsum. Við þurfum ekki að vera með einhvern flókinn og dýran og tæknilegan búnað til að gera það.“Hann segir framkvæmdina flóknari ef notast er við aðdráttarlinsur. „Þá þurfum við að vera með stjörnutracker sem eltir snúning jarðar.“Gísli Már segir hins vegar að einfaldasta leiðin sé að nota snjallsíma og gleiðlinsustillingu til að mynda sólmyrkvann. „Víðlinsa og hreinlega taka myndskeið, eina mínútu áður en almyrkvinn skellur á og eina mínútu eftir.“ STUNDUM ÞARF SÓLARSÍUR, EN EKKI ALLTAF Undir sumu