Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, segir Já-hreyfinguna hafa farið hægt af stað og skorta skýra leiðtoga. Traustur sigur náist ekki nema Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra beiti sér af fullum þunga. Á sama tíma hafi Ólafur Ragnar Grímsson orðið nánast óskoraður leiðtogi Nei-hreyfingarinnar og bundið pólitíska arfleifð sína við úrslitin.