Sex börn flutt á sjúkrahús eftir klórgasleka í norskri sundlaug

Sex börn voru flutt á sjúkrahús í Steinkjer í Noregi eftir að brennisteinssýra komst í snertingu við klór svo úr varð klórgas. Þetta gerðist í innanhússsundlauginni Dampsaga í dag.Í frétt NRK segir að efnunum hafi verið blandað saman fyrir mistök.Alvarleiki slyssins liggur ekki fyrir en í það minnsta 68 voru í lauginni.Stig Lunde, varðstjóri hjá neyðarþjónustunni í Mið-Noregi, segir að unnið sé að loftræstingu. Reykkafarar fóru inn í bygginguna til þess að sjá til þess að allir hafi verið komnir út.Christopher James White aðgerðarstjóri segir að fullorðnum hafi ekki stafað nein hætta af klórgasinu en að það gæti valdið öndunarfæraerfiðleikum hjá börnum. Nokkrum börnum hafi því verið komið undir læknis hendur og þau fengið súrefnismeðferð.Gunnar Thorsen, bæjarstjóri í Steinkjer, segir þetta
Sex börn flutt á sjúkrahús eftir klórgasleka í norskri sundlaug

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd