Stór íseyja hefur hringsólað á milli Vestfjarða og Grænlands síðustu vikur. Minni jakar brotna úr henn berast að ströndum landsins.Vel er þekkt að borgarísjakar rati að ströndum landsins síðsumars og á haustin. Landhelgisgæslan fer reglulega í ískönnunarflug og þaðan hafa borist nokkrar tilkynningar um stóra jaka nálægt landi að undanförnu.„Það sem er búið að vera svolítið spennandi núna í sumar er að það kom ansi stór íseyja, fleiri kílómetrar á lengd og breidd. Hún hefur haldist nokkurn veginn miðja vegu á milli Vestfjarða og Grænlands,“ segir Ingibjörg Jónsdóttir, landfræðingur og hafíssérfræðingur við Háskóla Íslands.Þar hefur íseyjan hringsólað að undanförnu sem er óvenjulegt að sögn Ingibjargar. „Og á meðan hún gerir það hafa minni jakar verið að brotna upp úr henni.“Á gervitunglamyn