Gríðarleg vonbrigði segir bæjarstjóri Vestmannaeyja

Almannavarnalögn til Vestmannaeyja skemmdist aðfaranótt sunnudags. Útlagning hennar hefur því verið stöðvuð. Þessi lögn er til vara ef eitthvað kemur fyrir neysluvatnslögnina til Vestmannaeyja. Sú lögn skemmdist í nóvember 2023 þegar akkeri togarans Hugins VE 55 lenti á henni. Byrjað var að leggja almannavarnalögnina 4. ágúst og eftir skemmdirnar um helgina hefur verið ráðist í greiningu og úttekt á vettvangi til að meta stöðuna. GRÍÐARLEG VONBRIGÐI Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir að þetta séu gríðarleg vonbrigði, nú sé unnið hörðum höndum að því að komast að orsök tjónsins, meta stöðuna og næstu skref og bíða forskýrslu um atburðarásina og vonandi skýrist það strax á morgun. KOSTNAÐUR FELLUR EKKI Á VESTMANNAEYJABÆ Afleiðingar eru enn óljósar en kostnaður vegn
Gríðarleg vonbrigði segir bæjarstjóri Vestmannaeyja

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd