Danska umhverfisstofnunin leitar nú að úlfi sem hefur sést nærri mannabyggð á Vestur-Jótlandi. Umhverfisráðherra segir að réttast sé að skjóta úlfinn og fleiri leiðtogar hafa tekið undir það.Úlfurinn sást fyrst fyrir viku, og þá á þremur stöðum nálægt húsagörðum í Nørre Nebel en lét svo ekkert á sér kræla. Í fyrrakvöld sást hann síðan nærri veitingastað í útjaðri bæjarins og það skapaði nokkurn kvíða meðal nærstaddra. Meðal annars sást hann skokka framhjá ærslabelg þar sem börn voru að leik.Umhverfisstofnun Danmerkur hefur leitað úlfsins frá því hann sást í þeim tilgangi að aflífa hann en heimild er til þess í lögum ef fólki stafar hætta af honum. Mat sérfræðinga er að svo sé. Litlu munaði að hann næðist í gær en hann slapp. Úlfsins er ákaft leitað, meðal annars með drónum, og er almenning