Ellefu hafa verið handteknir hér á landi og tveir erlendis í tengslum við andlát karlmanns á Kársnesi í Kópavogi á sunnudag. Þrír sátu í gæsluvarðhaldi en einum þeirra hefur verið sleppt. Yfirlögregluþjónn segir að svo virðist vera sem eggvopni hafa verið beitt við árásina. Tildrög árásarinnar séu óljós. TELJA AÐ EGGVOPNI HAFI VERIÐ BEITT Maðurinn sem lést var pólskur ríkisborgari á fimmtugsaldri. Hann hefur verið búsettur í Kópavogi undanfarin misseri og á fjölskyldu hér á landi.Elín Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn miðlægrar rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir rannsókn á frumstigi.„Lögreglan er kölluð að Vallargerði í Kópavogi og þar er þá úti mikið slasaður maður með mikla áverka og var hann fluttur á slysadeild í kjölfarið. Við teljum að eggvopni