Englendingurinn Juliette Kemp er komin til Breiðavíkur til að horfa á sólmyrkvann. Þetta er í fjórða sinn sem hún ferðast til að sjá sólmyrkva.Fyrsti sólmyrkvinn sem Juliette sá var í Cornwall á Englandi árið 1999. Þá var mjög skýjað. „Kosturinn við að hafa séð hann er að ég hef ekki miklar áhyggjur af því þótt það verði skýjað núna af því áhrifin eru samt mögnuð sem áhorfandi, af því að ótrúlegt en satt þá verður mjög, mjög dimmt,“ segir Juliette.„Þegar sólmyrkvi verður þegar það er skýjað getur manni næstum liðið eins og himininn sé að hrynja þegar almyrkvinn á sér stað.“ ÞRIÐJI SÓLMYRKVINN „ALGERT DRASL“ Næst ferðaðist Juliette heldur lengra til að eltast við sólmyrkva en árið 2001 fór hún alla leið til Sambíu. Þá var sólin sterk og ekki ský á himni.„Að sjá muninn á því og svo algeru