Skipuleggjandi sólmyrkvahátíðarinnar Iceland Eclipse á Hellissandi, Jón Bjarni Steinsson, hefur ekki miklar áhyggjur af skýjuðu veðri síðdegis í dag þegar sólmyrkvinn gengur yfir Ísland. Að auki segist hann hafa orðið sér úti um sérstaka veðurvél til þess að leysa upp skýin. Yfir 3.000 gestir, flestir frá Bandaríkjunum, verða á hátíðinni í dag og fylgjast með myrkvanum ásamt bæjarbúum sem er...