Greiningardeild Íslandsbanka telur að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækki stýrivexti um 0,25 prósentustig á miðvikudag eftir viku. Þeir yrðu þá 8%.Á síðustu árum hafa stýrivextir staðið hæst í 9%. Þeir fóru lækkandi á síðari hluta árs 2024, voru komnir í 8% í febrúar í fyrra og fóru lægst í 7,25% í nóvember. Seðlabankinn hóf að hækka vexti aftur á fyrri hluta þessa árs og þeir standa nú í 7,75%. MEIRI HÆKKUN LÍKLEGRI EN ENGIN BREYTING „Þrálát verðbólga, of háar verðbólguvæntingar og aukin óvissa um launaþróun á næstu misserum vegna endurskoðunarákvæðis í kjarasamningum munu þar vega þyngra en skýr merki um kólnandi vinnumarkað, betra jafnvægi á íbúðamarkaði og vaxandi slaka í hagkerfinu,“ segir í tilkynningu á vef Íslandsbanka.Greiningardeild bankans telur líklegra að vextir ver