„Þetta verður skemmtilegt. Ég er orðin mjög spennt fyrir þessu og bjóst ekki við að ég gæti orðið svona spennt fyrir almyrkva,“ segir Gerður Björk Sveinsdóttir, bæjarstjóri í Vesturbyggð, en í sveitarfélaginu eiga að vera afar góðar aðstæður til að virða fyrir sér almyrkva á sólu eins og fram hefur komið. Almyrkvi verður síðdegis í dag, sá fyrsti síðan 1954.