Margir ísjakar berast til landsins úr stórri íseyju milli Íslands og Grænlands

Stór íseyja hefur hringsólað á milli Vestfjarða og Grænlands á síðustu vikum. Úr henni brotna minni jakar og berast nálægt ströndum landsins.Vel þekkt er að borgarísjakar rati nálægt ströndum landsins síðsumars og á haustin. Landhelgisgæslan fer reglulega í ískönnunarflug og þaðan hafa borist nokkrar tilkynningar um stóra jaka nálægt landi að undanförnu.„Það sem er búið að vera svolítið spennandi núna í haust er að það kom ansi stór íseyja, fleiri kílómetrar á lengd og breidd. Hún hefur haldist nokkurn veginn miðja vegu á milli Vestfjarða og Grænlands,“ segir Ingibjörg Jónsdóttir, landfræðingur og hafíssérfræðingur við Háskóla Íslands.Þar hefur íseyjan hringsólað að undanförnu sem er óvenjulegt að sögn Ingibjargar. „Og á meðan hún gerir það þá hafa minni jakar verið að brotna upp úr henni.
Margir ísjakar berast til landsins úr stórri íseyju milli Íslands og Grænlands

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd