Tveir hafa verið handteknir erlendis, hvor í sínu Evrópulandinu, í tengslum við rannsókn á manndrápi að Vallarbraut í Kópavogi um helgina. Þeir sæta gæsluvarðhaldi í viðkomandi löndum. Ellefu hafa verið handteknir hérlendis, tveir sæta gæsluvarðhaldi hérlendis og einum hefur verið sleppt úr haldi. Lögregla telur að eggvopni hafi verið beitt en ekkert slíkt hefur fundist við rannsókn málsins. Hinn látni var pólskur ríkisborgari.