Tveir starfsmenn sendinefndar Sameinuðu þjóðanna í Afganistan voru handteknir af leyniþjónustu stjórnvalda í Herat í Vestur-Afganistan á sunnudaginn. Sameinuðu þjóðirnar krefjast þess að sérstök staða starfsmanna þeirra verði virt.Farhan Haq, talsmaður Antonios Guterres, aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna segir að ekki sé vitað hverjar ásakanirnar eru og engum hafi enn verið leyft að hitta þá.Hann skorar á stjórnvöld í Afganistan að virða forréttindi og friðhelgi starfsfólks og embættismanna Sameinuðu þjóðanna. Margar stofnanir þeirra starfa víðs vegar um Afganistan svo sem á sviði heilbrigðismála og mannúðaraðstoðar. SIÐFERÐISLÖGREGLA HANDTÓK HJÁLPARSTARFSMENN Laugardaginn 15. ágúst verða fimm ár frá því að talibanar komust til valda í Afganistan. Starfsemi Sameinuðu þjóðanna og a