Björgunarsveitum hefur tekist að bjarga nokkrum úr rústum hruninna bygginga eftir skjálftann sem varð í Kólumbíu á mánudag. Eftir því sem tíminn líður minnkar þó vonin um að fólk finnist á lífi.Minnst 216 eru látnir eftir skjálftann – talan var lækkuð úr 254 í gær. Þeir verða þó líklega fleiri þar sem yfir 3.800 manns er ennþá saknað. Hátt í 2.600 eru slasaðir. Hermenn, slökkviliðsmenn og sjálfboðaliðar hafa unnið hörðum höndum að því að leita að fólki undir rústum og í nokkrum tilvikum hefur það borið árangur.Ungri konu var bjargað úr rústum byggingar sem hafði hrunið í Pereira í Kólumbíu eftir jarðskjálftann þar. Staðfest dauðsföll eru 216 en hátt í 4.000 manns er saknað.Hér sést þegar hinni 32 ára Danielu Largo Sanchez er bjargað á lífi úr rústum í Pereira í gærkvöld. Björguninni var ák