Ásgeir Þór Ásgeirsson aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu segir lögregluna vel undirbúna fyrir sólmyrkvann. Hann segir atburðinn einstakan að því leytinu til að fátt sé fast í hendi.„Ég hef skipulagt marga viðburði en það eina sem við höfum fast í hendi á höfuðborgarsvæðinu er að það verða 7.000 manns á Víðistaðatúni. Þannig að við verðum eiginlega bara að fylgjast með hvernig restin verður,“ segir Ásgeir sem var gestur í Morgunútvarpi Rásar 2.„Fólk þarf hvorki að skrá sig né kaupa sig inn á viðburðina á höfuðborgarsvæðinu, þannig að við verðum með mikið og öflugt lið sem við ætlum að reyna að deila út á þessa staði sem hafa verið nefndir. Svo erum við með annað lið sem við getum fært á milli til að stoppa í götin.“ SKYNSAMLEGT AÐ VERA EKKI MIKIÐ Á FERÐINNI Von er á því að einhv