„Mótshaldarar kölluðu lögreglu til aðstoðar þegar vísa þurfti hópi af staðnum. Þeir treystu sér ekki til þess að gera það án okkar aðkomu vegna þeirrar framkomu sem þeir höfðu orðið fyrir.“ Þessum orðum fer Skarphéðinn Aðalsteinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn rannsóknardeildar lögreglustjórans á Norðurlandi eystra, um þá stöðu sem upp kom á Landsmóti skáta 2026 sem haldið var á Hömrum á Akureyri dagana 20.-26. júlí síðastliðinn.