Hlynur Snorrason, yfirlögregluþjónn á Vestfjörðum, segir lögreglu enn ekki hafa orðið vara við bílaraðir á svæðinu, þó viðbúið sé að þær myndist síðar í dag. Hann vill jafnframt minna ferðalanga á að á einhverjum tímapunkti muni lögregla hætta að hleypa fólki út að Látrabjargi, þaðan sem almyrkvinn mun vara hvað lengst á landinu.