Bílaröð myndaðist á tveimur stöðum við Breiðavík í nótt og greinilegt að fólk er tilbúið að koma sér fyrir á sem bestum stað til að berja sólmyrkvann augum. Almyrkvi verður á sólu síðdegis í dag sem mun vara lengst á landi við Látrabjarg.Aldrei hafa fleiri gist á hótelinu og á tjaldsvæðinu í Breiðavík og munu gera í nótt, þetta segir Maggý Hjördís Kieransdóttir, dóttir eigenda Hótels Breiðavík.„Við erum ekki vön að taka á móti svona miklu fólki og ég held að við séum flest á þessu svæði spenntari fyrir því að sjá þennan mannfjölda sem er kominn hérna á svæðið heldur en sólmyrkvanum sjálfum,“ segir Maggý. FÓLK VAKNAÐI SNEMMA OG KOM SÉR FYRIR Frá klukkan átta í gærmorgun til klukkan þrjú í nótt var starfsfólk á fullu að undirbúa gistisvæðið fyrir mannfjöldann. Maggý segir tvær bílaraðir h