Viðhald á brúnni yfir Jökulsá á Fjöllum hefst að nýju í næstu viku

Brúin yfir Jökulsá á Fjöllum við Grímsstaði á þjóðvegi 1, hringveginum, verður lokuð fyrir umferð hluta dagsins frá og með mánudeginum 17. ágúst vegna viðhaldsvinnu.Gert er ráð fyrir að unnið verði fram í miðjan september svo hægt sé að ljúka þeim verkefnum sem til stóð að klára í sumar, en aðgerðirnar eru háðar veðri. Vegagerðin greinir frá þessu í tilkynningu.Unnið verður alla virka daga frá klukkan 8 á morgnana til klukkan 19 á kvöldin. Á þessu tímabili verður opnað fyrir umferð fjórum sinnum á dag. Ekki er hægt að sinna viðhaldsvinnu að nóttu til því þá er loftraki of hár.Í tilkynningu Vegagerðarinnar segir að lokanir ættu ekki að hafa mikil áhrif á neyðarflutninga. Hægt verður að opna fyrir umferð um brúna með skömmum fyrirvara.„Brúin var byggð árið 1947 og burðarþolið hefur minnkað í
Viðhald á brúnni yfir Jökulsá á Fjöllum hefst að nýju í næstu viku

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd