Að minnsta kosti 15 fórust og 27 er saknað eftir að ferju með 114 farþegum, þar af nokkur börn, hvolfdi á Kariba-vatni í Simbabve í gær. Búið er að bjarga 77 úr vatninu.Fimm voru í áhöfn ferjunnar. Ferjan var með pláss fyrir 90 um borð.Ferjan siglir milli bæjarins Kariba við norðurenda vatnsins og til eyja þess. Vitni telur að ferjunni hafi hvolft í öldugangi. Vitnið sagði við AFP fréttaveituna að björgunaraðstoð hafi borist seint og það hafi tekið tíma að komast að bátnum vegna veðurs. Þyrla aðstoðaði við leit og björgun og nærliggjandi bátar, kafarar og herinn.Kariba-vatn er á landamærum Simbabve og Sambíu og er stærsta manngerða stöðuvatn í heimi að umfangi.