Litlar líkur á að það rofi til nema á norðvestanverðu landinu

Í dag verður austlæg átt, 5 til 13 metrar á sekúndu, hvassast við suðurströndina. Rigning eða skúrir víða um land en lengst af þurrt norðanlands fram eftir degi. Spár gera ráð fyrir skýjuðu veðri á vestanverðu landinu seinni partinn í dag. Líkur á að skýjuhulan brotni eru eins og áður frekar litlar, að því er segir í nýjum veðurpistli Veðurstofunnar, „en ef það gerist þá er það líklegast á norðvestanverðu landinu.“ Það lægir og dregur smám saman úr vætu í kvöld. Hiti 8 til 20 stig, svalast við sjóinn norðan- og austan til.Á morgun verður norðlæg eða breytileg átt, 5 til 10 metrar á sekúndu á norðanverðu landinu en annars hægari. Dálítil rigning eða skúrir í flestum landshlutum en úrkomulítið suðvestan til eftir hádegi. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast sunnan- og austanlands. Á föstudag er útlit
Litlar líkur á að það rofi til nema á norðvestanverðu landinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd