Bandarísk herþyrla skaut flugskeytum í vélarrými flutningaskips frá Panama í gær. Skipið reyndi að brjóta herkví Bandaríkjanna og var á siglingu um Ómanflóa áleiðis til hafnar í Íran.Bandaríski herinn segir í færslu á X, að áhöfnin á Vela Nova hafi ítrekað hunsað viðvörun frá bandaríska hernum þegar skipið var á siglingu áleiðis til hafnar sem er undir herkví.Bandaríski herinn hefur haft afskipti af siglingarleið 55 skipa sem reyndu að brjóta gegn herkvínni, stöðvað siglingu þriggja skipa með valdi og farið um borð í tvö skip síðan herkvíin var tekin upp aftur 14. júlí.Á tímabilinu 13. apríl til 18. júní hafði bandaríski herinn afskipti af siglingaleið 140 skipa og stöðvaði siglingu níu skipa með valdi.Íranar krefjast þess að Bandaríkin bindi enda á herkvína og setja það sem kröfu fyrir op