Tveir starfsmenn SÞ í haldi talibana

Tveir starfsmenn sendinefndar Sameinuðu þjóðanna í Afganistan voru handteknir af leyniþjónustu stjórnvalda í Herat, í vestur Afganistan á sunnudaginn. Sameinuðu þjóðirnar kalla eftir því að sérstök staða starfsmanna þeirra verði virt.Farhan Haq, talsmaður aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna Antonio Guterres, segir að Sameinuðu þjóðirnar viti ekki hverjar ásakanirnar eru á hendur starfsmönnunum og engum starfsmanni SÞ hafi enn verið leyft að hitta þá.Hann skorar á yfirvöld í Afganistan að tryggja að forréttindi og friðhelgi starfsfólks Sameinuðu þjóðanna og embættismanna þeirra séu virt. Margar stofnanir Sameinuðu þjóðanna starfa víðs vegar um Afganistan, svo sem á sviði heilbrigðismála og mannúðaraðstoðar. HJÁLPARSTARFSMENN HANDTEKNIR AF SIÐFERÐISLÖGREGLU Á laugardaginn kemur, 15. á
Tveir starfsmenn SÞ í haldi talibana

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd