Nettóvinsældir Donalds Trumps Bandaríkjaforseta hafa aldrei mælst jafn lágar eða -27. The Economist greinir frá þessum niðurstöðum skoðanakönnunar YouGov. 61% aðspurðra í könnuninni eru óánægð með störf forsetans, 34% eru ánægð með störf hans og 4% aðspurðra eru óvissir.Þetta er minnsti stuðningur við forsetann síðan hann hóf síðari forsetatíð sína í Hvíta húsinu. Stuðningurinn hefur lækkað um tæpt prósent frá síðustu mælingu fyrir viku síðan.Áframhaldandi árásir í Mið-Austurlöndum um miðjan júlí eru taldar mögulegar ástæður fyrir dvínandi fylgi hans milli kannana. Óvinsældir hans eru einnig sagðar vegna verðbólgu og verðhækkana í Bandaríkjunum. Meðalverð fyrir gallon af bensíni var undir þremur dollurum fyrir stríðið í Mið-Austurlöndum en nú er verðið komið í um 4 dollara. HALLAR Á VINS