Björgunarsveitir og óbreyttir borgarar leita enn í rústum bygginga víðsvegar um Kólumbíu eftir að 7,4 stiga jarðskjálfti skók þar jörðu í gær. Jarðskjálftinn olli umtalsverðum skemmdum í vesturhluta landsins. Tala látinna stendur í 250 og 2.595 eru slasaðir og að minnsta kosti 195 er saknað, samkvæmt forseta landsins. Aðrar tölur benda þó til þess að fjöldi þeirra sem er saknað sé nær fjögur þúsund.