Lokað að Látrabjargi í nótt

Lögreglan á Vestfjörðum hefur ákveðið að loka leiðinni frá Breiðavík að Bjargtöngum frá miðnætti í nótt og fram til klukkan 8 í fyrramálið, 12. ágúst. Ákvörðunin er tekin í samráði við Náttúruverndarstofnun og Vegagerðina.Ingvar Jakobsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Vestfjörðum, segir ákvörðunina tekna af öryggisástæðum. Síðustu 20 kílómetrarnir að Látrabjargi verða lokaðir yfir nóttina.Talsverður fjöldi fólks er á svæðinu og segir Ingvar markmiðið með lokuninni vera að hafa stjórn á fjölda fólks og ökutækja á svæðinu yfir nóttina. Innviðirnir við Látrabjarg hafi takmarkaða getu til að taka á móti miklum fjölda bíla.„Enginn greiði er gerður að því að vera fastur í einhverri Miklubrautarteppu,“ segir Ingvar.Ekki er heimilt að gista á svæðinu við Látrabjarg og hluti svæðisins er friðla
Lokað að Látrabjargi í nótt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd