Ronaldo kominn í hnapphelduna

Cristiano Ronaldo, einn þekktasti knattspyrnumaður heims, hefur gengið í hjónaband með Georginu Rodríguez.Ronaldo og Rodríguez giftu sig í borgaralegri athöfn í Cascais í Portúgal í dag. People greinir frá því að athöfnin hafi verið lítil og persónuleg og að fimm börn þeirra hafi verið viðstödd.Hjónin hafa verið saman síðan 2017 og kynntust þegar Georgina starfaði í verslun Gucci. Þau tilkynntu um trúlofun sína í ágúst í fyrra. Þau birtu í dag mynd á Instagram af höndum sínum með giftingarhringunum og undirtextanum „C❤️G“.Ronaldo er enn á fullu í atvinnumennsku og leikur með sádi-arabíska liðinu Al-Nassr. Hann gekk til liðs við félagið árið 2023 eftir farsælan feril meðal annars hjá Manchester United, Real Madrid og Juventus.Hann er því ekki hættur í fótbolta þó að heimsmeistaramótsferli h
Ronaldo kominn í hnapphelduna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd