Í september verða 30 ár liðin frá því að rapparinn Tupac Shakur var myrtur. Nú eru réttarhöld í málinu loksins hafin. Sá sem er ákærður er þó ekki talinn hafa skotið Shakur, aðeins skipulagt morðið. Ólíklegt er talið að réttarhöldin leiði í ljós hver skaut.Tupac Shakur, sem gekk undir listamannsnafninu 2Pac, var skotinn 7. september 1996 úr bíl í Las Vegas en þar var hann til að horfa á hnefaleikabardaga með Mike Tyson. Hann lést af sárum sínum sex dögum síðar. Hann var 25 ára en hafði þá selt milljónir platna og var kominn í frægðarhöll tónlistarmanna.Shakur var alinn upp á austurströndinni, aðallega í Harlem og Baltimore, en var með plötusamning við Death Row Records í Los Angeles og skipaði sér þannig á bekk með vesturströndinni í hiphop-tónlistinni. Mikill rígur var á milli þeirra sem