Margir vilja upplifa almyrkvann ofar skýjum

Aukin loftrýmisgæsla verður vegna almyrkvans. Fjöldi loftfara verður á sveimi seinnipartinn á morgun, aðallega yfir Vestfjörðum. Þyrluþjónustur hafa í nógu að snúast og sölumenn þurfa að svara fólki sem er tilbúið að yfirbjóða þá sem þegar eiga bókaða ferð.„Við erum búin að undirbúa þetta vel,“ segir Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri ISAVIA innanlandsflugvalla.„Við erum búin að vera að undirbúa þetta síðan í mars. Við erum búin að vera í nánu sambandi við almannavarnir og flugrekendur varðandi það flug sem er áætlað og planað á morgun.“Þjónustutímar á flugvöllum á Ísafirði og Bíldudal hafa verið lengdir og svo er gert ráð fyrir mikilli flugumferð við Rif á Snæfellsnesi. Þá er flugstjórnarmiðstöðin með aukin viðbúnað.„Vegna aukinnar umferðar í loftrýminu okkar. Þannig að við erum
Margir vilja upplifa almyrkvann ofar skýjum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd