Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Svani Arinbjarnarsyni, 68 ára, sem síðast er vitað um í Reykjavík í dag, þriðjudag.Svanur var síðast klæddur í bláan bol, svarta peysu og svartar buxur. Hann er gráhærður og með grátt skegg. Hann er í góðu líkamlegu standi en glímir við málstol og getur því lítið tjáð sig.Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Svans eða vita hvar hann er niðurkominn eru beðnir um að hafa tafarlaust samband við lögreglu í síma 112.