Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra vill að Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands nái saman um þær aðgerðir sem þau vilji sjá af hendi ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum.„Þetta eru þeir aðilar á vinnumarkaði sem þarf að vera traust á milli og ég myndi gjarnan vilja sjá að þau komi sér saman um þær aðgerðir sem þau myndu vilja sjá af hálfu ríkisstjórnarinnar,“ segir hún.Samtök atvinnulífsins og ASÍ verða að koma sér saman um aðgerðir sem þau vilja sjá ríkisstjórnina grípa til, segir forsætisráðherra. Ekki sé endalaust hægt að leysa kjarasamninga með stórum ófjármögnuðum aðgerðapökkum.Verkalýðshreyfingin hefur stigið fram og sagt að stjórnvöld og atvinnurekendur verði að axla ábyrgð á erfiðu efnahagsumhverfi og grípa til aðgerða. Að öðrum kosti verði kjarasamningum sagt upp í hau