Ásta Sigurbjörg Guðjónsdóttir er 97 ára. Hún man vel eftir almyrkvanum í Vestmannaeyjum árið 1954. Þá var hún 25 ára gift tveggja barna móðir.„Ég var að hengja þvott út á snúru. Mér finnst það hafa verið fyrir hádegi. Ég hlýt að hafa verið búin að þvo áður en ég man ekkert eftir því. Ég var bara að hengja út, léttklædd, með stelpuna í vagninum og var að hengja út. Þá byrjaði þetta,“ segir Ásta.Hún segir upplifunina hafa verið stórkostlega.„Að sjá þegar tunglið kom yfir smám saman og fuglakvakið var mjög mikið. Svo kólnaði. Ég tók barnið mitt úr vagninum og hlóp með það inn til mömmu minnar sem bjó í næsta húsi. Þetta er mín upplifun. Og hún sagði: „Vertu bara róleg. Þetta gengur yfir.“Ásta Sigurborg Guðjónsdóttir upplifði almyrkva á sólu í Vestmannaeyjum árið 1954. Hún var þá 25 ára og myr