Cristiano Ronaldo og Georgina Rodriguez virðast hafa gengið í hjónaband á laun.Parið birti sameiginlega færslu á Instagram fyrir skömmu þar sem þau sýna gullhringi á baugfingrum sínum. Við myndina stóð einfaldlega „C❤️G“ og fékk færslan yfir milljón læk á örfáum mínútum.