Freista þess að fljúga með skugga mánans

Vísindamenn NASA segja almyrkva sólar einstakt tækifæri til að rannsaka áhrif sólar á jörðu. Tugir þeirra eru hér á landi og nota ýmis tæki við rannsóknir sínar.Um fjörutíu vísindamenn bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA komu hingað til lands til að rannsaka áhrif almyrkva á sólu á andrúmsloft jarðar og ýmislegt annað. Það verður rannsakað með loftbelgjum og sérútbúinni flugvél.Vélin sú flýgur í 50.000 feta hæð og þess verður freistað að fljúga með skugga tunglsins og safna gögnum sem nýtast við rannsóknir. „SÓLMYRKVINN ELTIR OKKUR“ „Þetta er merkilegur atburður,“ segir Tom Parent, einn þeirra sem fljúga rannsóknarflugvélum NASA. „Það verður þannig að sólmyrkvinn eltir okkur, við fljúgum vélinni á undan myrkvanum.“Og með því að fara á 740 kílómetra hraða á klukkustund og með skugga
Freista þess að fljúga með skugga mánans

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd