Samtök verslunar og þjónustu lýsa áhyggjum af nýrri Evrópureglugerð sem gæti gjörbreytt því hvernig neytendur versla í matinn. Til að draga úr umfangi plastumbúða á að leggja hluta matvöruverslana undir áfyllingarstöðvar. Þá gætu drykkjarvörur og jafnvel skyndibiti verið seld í fjölnota umbúðum, sem ætti svo aftur að skila til söluaðilans.