Útlagning nýju vatnslagnarinnar til Vestmannaeyja hefur verið stöðvuð vegna þess að skemmdir urðu á henni aðfaranótt sunnudags.Þetta segir í tilkynningu frá Vestmannaeyjabæ.Lögnin er almannavarnalögn er til vara ef eitthvað kemur fyrir neysluvatnslögnina til Vestmannaeyja. Sú lögn varð fyrir skemmdum eftir að akkeri togarans Hugins VE 55 hafnaði á henni í nóvember 2023.Byrjað var að leggja almannavarnalögnina 4. ágúst. Eftir að skemmdir urðu á henni um helgina var ráðist í greiningar- og úttektarvinnu á vettvangi til að meta stöðuna, segir í tilkynningu frá bænum.„Sú vinna hefur staðið yfir síðustu daga og er nú beðið eftir formlegri skýrslu frá Subsea 7 sem mun staðfesta bæði nákvæmar orsakir tjónsins og umfang þess.“