Helgi Þorsteinsson Silva, lögmaður skipverja á skipinu Bandero, telur að meðalhófs hafi ekki verið gætt við málsmeðferð skipverjanna. Skipið var kyrrsett þegar skipverjar reyndu að stöðva hvalveiðiskip í lok júlí.Umsókn nokkurra skipverja um frestun á framkvæmd brottvísunar var í dag hafnað. Það geti leitt til þess að skipið verði fast á Íslandi ásamt þeim skipverjum sem enn eru hér á landi.Þegar hafa 13 skipverjar yfirgefið landið af 21. Til stendur að tveimur verði svo vísað af landi brott á morgun, þar á meðal einum skipverja með skipstjóraréttindi sem nauðsynlegur er til að sigla skipinu.Helgi segir að helsti vilji skipverjar fá frestun til að geta viðhaft lágmarksmönnun um borð í skipinu. Enginn skipverja mótmælir brottvísunum sínum en þeir vilja helst ljúka málinu með því að sigla sk