Von er á fjölda erlendra blaðamanna til landsins í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið. Íslandsstofa hefur opnað sérstaka fjölmiðlastöð vegna mikillar eftirspurnar.Álfrún Pálsdóttir, fagstjóri almennatengsla Íslandsstofu, segir fjölmiðlafólk koma víða að. Búist er við blaðamönnum og öðru starfsfólki frá um fimmtíu erlendum fjölmiðlum til landsins í kringum 29. ágúst.„Við fundum fyrir gríðarlega miklum áhuga frá erlendum miðlum á kosningunum og við vissum af töluverðum fjölda sem verður staddur hér um og yfir kosningar, við töldum þörf á að hafa miðstöð sem safnar þessu öllu saman,“ segir Álfrún. SUMIR SLÁI TVÆR FLUGUR Í EINU HÖGGI Álfrún segir von á blaðamönnum frá Bandaríkjunum, Norðurlöndunum, Bretlandi og öðrum Evrópuríkjum. Mi