Umferðin þyngist – „Mjög ánægjulegt hvað margir eru á ferðinni í dag“

Fjöldi fólks er á ferðalagi í dag vegna sólmyrkvans á morgun. G. Pétur Matthíasson, forstöðumaður samskiptadeildar Vegagerðarinnar, segir greinilegt að umferð sé að þyngjast.„Við sjáum það bæði í Hvalfjarðargöngum og þeir segja mér að um Svínadalinn og Kleifaheiði til dæmis hafi bara verið töluvert miklu meiri umferð en vanalega. Þannig það er augljóst að menn eru lagðir af stað og eru að fara vestur á firði líklega mest,“ segir Pétur.Umferðin virðist hafa gengið mjög vel fyrir sig.„Ég hef ekki heyrt af neinni uppákomu,“ segir Pétur. „Í rauninni er bara mjög ánægjulegt hvað margir eru á ferðinni í dag þannig að umferðin mun dreifast töluvert.“ UMFERÐARSTÝRING Vegagerðin hefur hvatt vegfarendur til að leggja snemma af stað. Búist er við talsverðum umferðarþyngslum á morgun, bæði fyrir og
Umferðin þyngist – „Mjög ánægjulegt hvað margir eru á ferðinni í dag“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd