Norðmenn fylgjast grannt með þjóðaratkvæðagreiðslunni á Íslandi um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þeir spyrja jafnframt hvort þeir ættu þá einnig að hefja viðræður við sambandið á ný. Ný skoðanakönnun sýnir að meirihluti Norðmanna er enn andvígur því að sækja aftur um aðild að sambandinu.