Brottrekinn forseti Hæstaréttar Ungverjalands skipaður forseti landsins

Andras Baka, fyrrverandi forseti Hæstaréttar Ungverjalands, var kosinn forseti landsins á ungverska þinginu í dag. Baka, sem var gagnrýninn á Viktor Orban fyrrverandi forsætisráðherra og var rekinn frá Hæstarétti í valdatíð hans, var teflt fram sem frambjóðanda stjórnarflokksins Tisza.Tamas Sulyok hafði gegnt embætti forseta frá árinu 2024 og var kjörtímabili hans hvergi nærri lokið. Magyar hafði hins vegar lofað í kosningabaráttunni að leysa frá störfum embættismenn í valdatíð Orbans sem hefðu aðeins verið strengjabrúður hans.Sulyok var þar nefndur sérstaklega. Til þess að það væri mögulegt þurfti að gera stjórnarskrárbreytingu og var Sulyok vikið úr starfi forseta með einu aukaákvæði í stjórnarskránni. Aðferðin var gagnrýnd og hún sögð á skjön við stjórnarskrána. AÐEINS SEX MÓTATKVÆÐI
Brottrekinn forseti Hæstaréttar Ungverjalands skipaður forseti landsins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd